Tilkynningar

Bifhjólanámskeið

Næsta bifhjólanámskeið verður  haldið í Álftamýrarskóla miðvikudaginn 14. mars og fimmtudaginn 15. mars, 2012. Námskeiðið hefst kl: 17:30 báða dagana. Nánari upplýsingar veitir Haukur í s: 694-9515.

Bifhjólanám Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst Deila á facebook

Á hverju byrja ég?

Bifhjólapróf má taka við 17 ára aldur.

  • Fyrsta skrefið við upphaf bifhjólanáms er að hafa samband við ökukennara.
  • Ökukennari aðstoðar nema í frammhaldi við að velja bifhjólaskóla þar sem bóklegur hluti námsins fer fram.
  • Viðkomandi þarf svo að sækja um bifhjólaréttdi hjá sýslumanni.
  • Því næst er bóklegt próf pantað hjá Frumherja í síma 570-9070 eftir að bifhjólaskóla er lokið.
  • Þegar viðkomandi hefur lokið bóklegum hluta kennslunar má byrja á verklega þættinum.
  • Ökukennari sér svo um að panta verklegt bifhjólapróf þegar hann telur nemann nægilega færan til að aka af öryggi í umferðinni.

 

Bifhjólanám

Til þess að fá réttindi á bifhjól þarf taka 24 tíma bóklegt nám og að minsta kosti 11 tíma verklegt nám.
Þeir sem hafa B-réttindi (almenn ökuréttindi) þurfa að taka 12 tíma bóklegt nám og 11 tíma verklegt nám.

Nám hefst á bóklegu námi sem endar með prófi og taka þvínæst verklegir tímar við.

M - Létt bífhjól (Skellinaðra)

Veitir rétt til að stjórna:
léttu bifhjóli/skellinöðru með slagrými ekki yfir 50 sm3 og ekki hannað til hraðari aksturs en 45 km.
Aldurstakmark fyrir M réttindi er 15 ár.

A - Litið bífhjól

Veitir rétt til að stjórna:
litlu bifhjóli , en undir það flokkast:

  • tvíhjóla bifhjól/mótorhjól án hliðarvagns þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,16 kW/kg (0,21 hp/kg). Þá má vélarafl bifhjólsins ekki fara yfir 25 kW (34hp)
  • tvíhjóla bifhjól með hliðarvagni þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,16 kW/kg (0,21 hp/kg)
  • þríhjóla bifhjól
  • létt bifhjól og torfærutæki.


Aldurstakmark er 17 ár

 

A - Stórt bífhjól

Veitir rétt til að stjórna:
stóru bifhjóli , en undir það flokkast:

 

  • tvíhjóla bifhjól án hliðarvagns þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer yfir 0,16 kW/kg (0,21 hp/kg), það veitir einnig rétt til að stjórna vélsleða og önnur þau tæki sem upp eru talinn hér fyrir ofan.


Aldurstakmark 21 ár eða að hafa verið með "A Lítið bifhjól" í amk 2 ár.